Safn: Tækifæriskort fyrir börn hönnuð af börnum
Kashima Junior kortin eru hönnuð af börnum fyrir börn. Dætur okkar teikna og lita myndir á pappír, sem við svo skönnum inn og vinnum, áður en við prentum þau út á kort. Við lögum ekki teikningarnar þeirra heldur er tölvuvinnslan einungis til að auðvelda okkur að framleiða mörg kort úr hverri mynd. Eftir nokkur ár af þessu ferli eigum við orðið teiknaðar myndir frá mismunandi aldri stelpnanna og það sést á hönnuninni.