Tjaldurinn
Deila
Tjaldurinn er uppáhaldsfugl systur minnar og fjölskyldunnar hennar. Sumarið 2023 vorum við mikið í heimsókn hjá þeim úti í Hrísey og ég ákvað að búa til lítið fuglateppi handa þeim.
Ég lá lengi úti í garði með myndavélina til að ná réttu myndinni, og þau gerðu óspart grín að mér fyrir vikið — allt í mesta bróðerni.
Verkið varð svo að gjöf til þeirra í september 2023 og hangir enn uppi í stofunni hjá þeim.
Núna, þegar við erum sjálf flutt í næsta hús við hliðina, eru þessir tjaldar orðnir svolitlir vinir okkar líka — það eru alltaf tveir til þrír á vappi hér á hverju sumri. Dætrum mínum finnst þeir samt mega hafa svolítið minni læti á næturnar, enda er tjaldurinn þekktur fyrir skræk og hávær hljóð.
Verkið er 41 × 30 cm og var unnið árið 2023.
Það er núna lánað á mína fyrstu einkasýningu, Kashima bútasaumssýningu, á Listasumri í Hrísey þessa helgi (17.–18. júlí).