Í dag gaf ég Hríseyjarbúðinni eftirprentun af bútasaumsverkinu mínu „Lóan er komin“.

Miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið í Hríseyjarbúðinni og búðin hefur verið frískuð upp, þessi mynd fellur vel að nýja útlitinu. Það er alltaf jafn gaman að sjá verkin sín á fjölförnum stöðum í nærumhverfinu.
Það er einnig gaman að minna á það að póstkort, tækifæriskort og fleira sem byggir á bútasaumsverkum mínum til sölu í Hríseyjarbúðinni, ásamt Hríseyjar YATZY-inu og nýjustu viðbótinni, Fugla YATZY.
Nánari upplýsingar má finna á www.kashima.is