Álftin og tunglið
Deila
Þetta verk varð til þegar ég bjó í Japan og ákvað að senda það inn í evrópska samsýningu, Open European Quilt Championships.
Open European Quilt Championships (OEQC) er árleg alþjóðleg keppni og sýning bútasaumsverkum sem hefur verið haldin í Maastricht í Hollandi (í MECC ráðstefnumiðstöðinni). Keppnin snýst um bútasaums áskorun þar sem þátttakendur búa til verk út frá ákveðnu þema hvert ár (t.d. var þemað "Berlin" árið 2013).
Árið sem þemað var "20" var 2016, það ár var 20 ára afmæli keppninnar, svo þemað fyrir áskoruna var einfaldlega "20" til að fagna þeim tímamótum.
Mér datt í hug að álftin og tunglið gætu saman myndað fallega tuttugu.
Myndin af svaninum er tekin 2. apríl 2016 í Iwakuni í Yamaguchi-héraði í Japan. Við Margrét vorum þar í helgarferð að heimsækja japönsk hjón sem Siffi kynntist í keppnisferðalagi, og náðum meðal annars að skoða Hanami-kirsuberjatrén í fullum blóma.



Verkið hlaut 2. sæti í Novice-flokki á Open European Quilt Championships 2016 í Maastricht, undir titlinum „Swan in the moonlight“. Verkið fór svo á samsýningu með öðrum verkum sem unnu um alla evrópu.

Í dag er margt sem ég myndi gera öðruvísi, þetta er eitt af elstu verkunum mínum í þessari tækni, og það sést. En mér þykir samt undur vænt um þetta verk.