Af hverju tækifæriskort?

Til hvers að senda einhverum kort? Skiptir það einhverju máli hvort við sendum hvoru öðru kort við hin ýmsu tækifæri?
Þegar við vorum að hugsa um að byrja að selja tækifæriskort í ververslun spurðum við okkur margra spurninga. 
Af hverju ætti fólk að kaupa tækifæriskort af okkur?
Af hverju er fólk yfirhöfuð að senda kort til annara?
Svörin okkar eru einföld:
Við sendum kort til að fagna með hverju öðru á mikilvægum augnablikum í lífinu. Það er mikilvægt að við óskum hverju öðru til hamingju, hrósum, vottum samúð, bara að muna eftir hvoru öðru og láta vita. 
Þannig að við trúum því að:
"Heimurinn er betri þegar við munum eftir hvoru öðru"
En af hverju ættir þú að kaupa tækifæriskort af okkur?
Af hverju ekki?
Kortin okkar eru fallega hönnuð, einföld og stílhrein. Það er auðvelt að kaupa þau á netinu og fá send heim. Til að gera líf okkar allra aðeins auðveldara þá seljum við líka kort í pökkum. Hver pakki inniheldur mismunandi kort. Þannig getur þú haft nokkur kort tilbúin heima hjá þér, fyrir mismunandi tilefni og þarf ekki að hafa áhyggjur af því að gleyma því að kaup kort, eða hafa ekki tíma. 
Back to blog